Skólasamstarfið - Regnbogahópur

Regnbogahópur, elsti árgangur barna í Skýjaborg, kom í sína fyrstu skólaheimsókn í Heiðarskóla í gær. Börnin byrjuðu í íþróttasalnum í Heiðarborg hjá Sólrúnu íþróttakennara í skemmtilegum leikjum. Síðan komu börnin í Heiðarskóla þar sem skólastjóri tók á móti þeim og sýndi þeim skólann. Á stöku stað urðu fagnaðarfundir þegar börnin hittu eldri systkini. Börnin fengu ávexti og áttu góða stund í leikstofunni í lok heimsóknar. Regnbogahópur kemur alls sex sinnum til okkar á haustönn og tekur m.a. annars þátt í Fullveldishátíðinni okkar sem haldin verður fimmtudaginn 27. nóvember.