- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Við áttum góða stund í gær þar sem Ósk frá Landvernd kom í heimsókn til okkar. Ósk gerði Grænfánaúttekt og fundaði með Rósahóp, elsta árgangi leikskólans, sem sitja öll saman í umhverfisnefnd barna. Ósk og barnahópurinn ræddu meðal annars mikilvægi umhverfismenntar, að passa upp á rusl, endurnýta hluti og að leika úti í náttúrunni.
Að lokum var Grænfánaafhending þar sem Rósahópur fékk það hlutverk að taka á móti viðurkenningu Skóla á grænni grein og Grænfánanum. En þetta var í áttunda skiptið sem Skýjaborg hlýtur þessa viðurkenningu og fengum við eftirfarandi endurgjöf með:
„Leikskólinn heldur áfram að standa sig vel í Grænfánaverkefninu. Margt orðið að föstum lið eins og endurnýting á efnivið, fjölbreytt nýting á náttúrulegum efnivið, skógarferðir og útivera, fuglafræðsla/skoðun, ræktun. Öll börn á leikskólanum fá tækifæri til þess að taka þátt í Grænfánastarfinu eftir aldri og þroska. Til fyrirmyndar er hvernig skólinn heldur upp á þá daga sem tileinkaðir eru náttúru og umhverfi. Hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi Grænfánavinnu og minnum á að alltaf er hægt að hafa samband og óska eftir stuðningi eða fræðslu. Þið hafið náð þeim góða árangri að fá grænfánann afhentan í áttunda sinn. Innilega til hamingju með það!“
Fyrir áhugasama er Grænfánaskýrslu Skýjaborgar til síðustu tveggja ára að finna hér.
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |