- Fréttir
 - Skólastarfið
 - Starfsfólk
 - Heiðarskóli
 - Skýjaborg
 - Foreldrar
 - Menntastefna
 
Það var mikið líf og fjör í skólanum í dag. Í morgun var einstaklega vel heppnuð danssýning. Krakkarnir sýndu hvað þeir hafa lært í danskennslunni undanfarnar vikur. Við þökkum öllum sem sáu sér fært að koma á sýninguna fyrir komuna. Einnig viljum við þakka Jóhönnu Árnadóttur sérstaklega vel fyrir danskennsluna. Inn á myndasafnið eru komnar myndir frá danssýningunni. Nú stendur yfir smiðjuhelgi og þessa stundina eru 6. – 10. bekkur að æfa fyrir Árshátíð skólans. Unglingarnir gista síðan í skólanum í nótt og í fyrramálið kemur Ragnheiður Aradóttir á vegum Proevents og verður með spennandi námskeið fyrir krakkana.
| 
 Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is | 
 Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |