Snákahópur í Heiðarskóla

Í dag kom Snákahópur, elsti árgangur Skýjaborgar, í heimsókn í Heiðarskóla. Mikil gleði með það og allir mjög glaðir með samstarfið. Ekki annað að sjá en allir væru glaðir og ánægðir. Börnunum fannst ýmislegt skemmtilegast, t.d. sundið, hitta systkini, leika úti en ekki var annað að sjá en allir væru að njóta sín og tilbúnir í frekari aðlögun fyrir komandi skólaár.