Starfsmaður óskast tímabundið í 100% stöðu í leikskólanum Skýjaborg

Starfsmann vantar í afleysingu í 100% vinnu inni á deild til a.m.k. 14. apríl.  

Skýjaborg er í tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku.

Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar má finna hjá leikskólastjóra, Eyrúnu Jónu Reynisdóttur, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfanginu eyrun@hvalfjardarsveit.is

Umsóknarfrestur er til og með 14. mars næstkomandi og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.

Nauðsynlegt er að starfsmaður geti hafið störf sem allra fyrst.