- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
SumarGaman Hvalfjarðarsveitar fyrir börn í 1. – 4. bekk Heiðarskóla hefur aldeilis gengið vel. Góð þáttaka er í SumarGaman en 21 barn er skráð nú í júní. Börnin hafa mest megnis verið í Álfholtsskógi og við fengið að nýta aðstöðuna í Furuhlíð. Færum við Skógræktarfélagi Skilmannahrepps bestu þakkir fyrir það.
Ýmislegt hefur verið brallað í SumarGaman nú í júní. Einn dagurinn var í Skógræktinni á Akranesi og á Langasandi. Farið var í sveitaferð að Háafelli og í sund í Breiðholtslaug. Auk þess hafa börnin unað sér vel í skóginum í alls kyns verkefnum, leikjum og gleðistundum. Miðvikudaginn 24. júní er síðasti dagurinn í SumarGaman og þá verður boðið upp á pizzur í hádegismat.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |