- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Survivor dagur Heiðarskóla var haldinn í Álfholtsskógi sl. fimmtudag í blíðskaparveðri.
Nemendur skólans í 6 aldursblönduðum hópum fengu það verkefni að finna nafn á hópinn sem tengdist náttúrunni, huga að gullpinnaatriði og hanna fána liðsins á undirbúningsfundum fyrir daginn sjálfan.
Við hófum daginn í skóginum á morgunverði við Furuhlíð og að því loknu fóru nemendur og starfsmenn í ratleik og leystu fjölbreytt verkefni á 6 stöðvum. Að því loknu þurftu hóparnir að reisa skýli.
Í hádegsiverð var boðið upp á hamborgara og gaman að segja frá því að sundhópurinn sem mætir venjulega til okkar í Heiðarskóla á mánudögum og fimmtudögum í hádegismat mætti til okkar í skóginn.
Eftir hádegisverð sýndu nemendur gullpinnaatriðin sín og úrslit voru kynnt. Að þessu sinni var það græna liðið Fíflar sem vann. En mjótt var á munum og óhætt að segja að allir hópar sýndu þvílíkan metnað og dómarar höfðu úr vöndu að ráða.
En dagurinn var í alla staði vel heppnaður þar sem unglingar stóðu sig einstaklega vel í að vera leiðtogar og börn í 1. – 10. bekk unnu saman að því að standa sig vel í samvinnu, áhuga og virkni.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |