- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í gær fóru börnin í leikskólanum, 3 ára og eldri, í skemmtilega ferð að Hvítanesi. Farið var með rútu til og frá leikskólanum og ríkti mikil tilhlökkun hjá börnunum.
Bændurnir tóku einstaklega vel á móti okkur. Við kíktum í fjósið og sáum nautin og kálfana. Við fórum í fjárhúsið þar sem börnin fengu að halda á lambi ef þau vildu. Við kíktum inn í fuglahúsið þar sem bændur halda alls kyns tegundir af hænum, öndum og einnig kalkún. Við fengum að sjá litla hænu- og andarunga og öll fengu að halda á þeim sem vildu.
Við kíktum einnig í mjög svo skemmtilega ferð í fjöruna þar sem var margt að sjá. Það er mikið fuglalíf í fjörunni og hólmanum. Börnin sáu til að mynda sel spóka sig í fjörunni.
Í hádegismatinn grilluðum við pylsur og fengum djús og vatn að drekka.
Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |