Þorrinn í Skýjaborg

Í upphafi þorra, á bóndadaginn, buðum við í bóndadagskaffi í leikskólanum. Boðið var upp á kaffi, brauð, kex, salat, ýmislegt álegg og melónur. Börnin höfðu teiknað mynd af pabba sínum eða afa og svarað nokkrum spurningum um þá sem hengdar voru upp til sýnis. Á sama tíma var landsleikur í handbolta og kveiktum við á honum fyrir þá sem vildu fylgjast með. Sumir settust niður og spjölluðu saman yfir kaffibolla á meðan aðrir fóru í leik með börnunum. Við áttum góða og notalega stund með pöbbum, öfum, systkinum, nokkrum mömmum og ömmum og þökkum við öllum kærlega fyrir komuna.

Í lok janúar héldum við rafmagnslausan dag. Dagurinn var frekar dimmur og því fengu nokkrar ljósaseríur að lýsa upp myrkrið. Rafmagnsleysið vakti forvitni og umræður meðal barnanna. Ekki var hægt að rista brauð eða elda heitan mat í hádeginu og þurftum við því að leysa málin á annan hátt.

Þann 5. febrúar héldum við þorrablót. Í hádeginu var boðið upp á soðið hangikjöt, kartöflur, uppstúf og meðlæti. Einnig var ýmislegt hefðbundið þorrasmakk í boði, svo sem harðfiskur, hákarl, sviðasulta og svið, og voru krakkarnir dugleg að smakka. Dagana fyrir þorrablótið föndruðu börnin sér víkingahatta sem þau skörtuðu svo á þorrablótinu.

Í söngstundum voru sungin lög sem tengjast þorranum. Börnin á Regnboganum lærðu einnig þulu sem þau fóru með daglega fyrir hádegismatinn. Það er hefð hjá okkur í Skýjaborg að fara með þulu saman fyrir hádegismat.