Töltkeppni Heiðarskóla

Töltkeppni Heiðarskóla var haldin í dag. Við erum mjög þakklát fyrir þátttöku foreldra í þessari hefð Heiðarskóla, allir voru boðnir og búnir með að aðstoða með hvaðeina. Að þessu sinni tóku 6 nemendur skólans þátt í töltkeppninni sem er tvöföldun frá fyrra ári þegar 3 nemendur tóku þátt. Úrslitin voru eftirfarandi:

  • Töltmeistari Heiðarskóla 2023 í 1. sæti -  Anton Már Greve Magnússon
  • Matthildur Svana Stefánsdóttir í 2. sæti
  • Valey Rún Birkisdóttir í 3. sæti

Allir knaparnir eiga hrós skilið og stóðu sig með stakri prýði og við þökkum þeim kærlega fyrir þáttökuna og foreldrum fyrir aðstoðina.