Töltkeppni Heiðarskóla

Töltkeppni Heiðarskóla fór fram í dag í blíðskaparverði á íþróttadegi Heiðarskóla. Sex knapar tóku þátt. Það voru þau Aron Dagur í 1. bekk, Ásmundur í 2. bekk, Reynir Snær í 4. bekk, Gunnjóna og Hafsteinn í 5. bekk og Valey Rún í 6. bekk. Þau stóðu sig öll mjög vel og dómarinn hrósaði hópnum fyrir þátttökuna, að standa sig vel og hafa góð tök á hestunum – enginn hljóp upp og allir rólegir.

Úrslitin í töltkeppninni þetta árið voru; Reynir Snær í þriðja sæti, Hafsteinn í öðru sæti og Valey Rún í fyrsta sæti. Valey Rún er því töltmeistari Heiðarskóla 2025.  

Þökkum öllum knöpum og aðstandendum þeirra kærlega fyrir þátttökuna og að gera okkur fært að viðhalda þessum skemmtilega viðburði í Heiðarskóla sem töltkeppnin er.

Þökkum einnig dómaranum honum Guðbjarti frá Skipanesi fyrir að koma og dæma fyrir okkur. Þess má geta að farandbikarinn sem fer á milli töltmeistara Heiðarskóla er gjöf frá systkinunum í Skipanesi.