Töltkeppni Heiðarskóla

Töltkeppni Heiðarskóla fór fram í dag í blíðskaparverði á íþróttadegi Heiðarskóla. Fimm knapar tóku þátt. Það voru þau Guðrún Agnes í 1. bekk, Reynir Snær í 5. bekk, Gunnjóna og Hafsteinn í 6. bekk og Valey Rún í 7. bekk. Þau stóðu sig öll mjög vel.

Úrslitin í töltkeppninni þetta árið voru: Hafsteinn í 3 sæti, Valey Rún í 2. sæti og Reynir Snær í fyrsta sæti og því töltmeistari Heiðarskóla 2026.

Þökkum öllum knöpum og aðstandendum þeirra kærlega fyrir þátttökuna og að gera okkur fært að viðhalda þessum skemmtilega viðburði í Heiðarskóla sem töltkeppnin er.

Þökkum einnig dómaranum henni Svandísi Lilju frá Skipanesi fyrir að koma og dæma fyrir okkur. Þess má geta að farandbikarinn sem fer á milli töltmeistara Heiðarskóla er gjöf frá systkinunum í Skipanesi.