Umferðarvika og hjóladagur

Í síðustu viku var umferðarvika hjá okkur í Skýjaborg. Elsti árgangurinn tók þátt í umferðarskólanum (verkefni frá Samgöngustofu). Í umferðarskólanum er m.a. fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig fara eigi yfir götu og hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti. Þau skoðuðu reiðhjólahjálm og lærðu hvernig á að stilla hann rétt á höfðinu. Í lok fræðslu fengu þau litabók.

Við áttum svo góðan hjóladag á fimmtudaginn í alveg frábæru veðri. Lögreglan kom í heimsókn og var með umferðarfræðslu fyrir börnin úti ásamt reiðhjólaskoðun. Það er alltaf gaman að fá lögregluna í heimsókn og hafa börnin alltaf jafn gaman af því að spjalla við hana.

Við höfum undanfarin ár nýtt okkur stóra bílaplanið fyrir utan Stjórnsýsluhúsið á hjóladaginn til að hafa gott rými til að hjóla en það var verið að mála línurnar þannig að það var ekki hægt að þessu sinni, svo við vorum bara í garðinum okkar og gekk vel.

Diljá fór með elsta árganginn í smá hjólatúr í hverfinu eftir hádegismatinn sem vakti lukku.