Umhverfisþema í Heiðarskóla

Í þessari viku stendur yfir umhverfisþema í Heiðarskóla. Umhverfisnefnd skólans, sem skipuð er einum fulltrúa úr hverjum bekk, valdi að taka fyrir NEYSLU að þessu sinni. Áður höfum við unnið með vatn, endurvinnslu, loftslagsbreytingar, átthaga og orku í umhverfisþemum. Á vef Landverndar, sem heldur utan um grænfánavinnu grunnskóla, má finna eftirfarandi um neyslu: "Neysla: Hverjar eru raunverulegar þarfir okkar? Þurfum við allan þennan mat, föt, hluti? Hvaðan kemur þetta allt? Er þetta framleitt á Íslandi eða annars staðar? Hvað verður um það sem við erum hætt að nota? Getum við minnkað neyslu okkar? Hvað felur það í sér? Minnka lífsgæðin um leið og við minnkum neysluna? Hvaða hlutir skipta okkur raunverulegu máli í lífinu?" 

Á föstudaginn verður sýning á vinnu nemenda. Foreldrar, ömmur og afar hjartanlega velkomnir.