- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Á dögunum tók Heiðarskóli þátt í UNICEF Hreyfingunni. UNICEF Hreyfingin er fræðslu- og fjáröflunarverkefni fyrir grunnskólabörn á Íslandi. Markmið þess er að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og virkja þau til samstöðu með jafnöldrum sínum víða um heim. Sjá nánar hér; https://www.unicef.is/unicef-hreyfingin
Nemendur okkar fengu vandaða fræðslu um réttindi sín og ólíkar aðstæður jafnaldra sinna í öðrum löndum og tóku hreyfihluta verkefnisins s.l. miðvikudag. Margir sýndu verkefninu mikinn áhuga og náðu að fylla 3 heimspassa í hlaupinu. Á morgun, miðvikudaginn 14. maí kl. 10:50 ætlum við að taka Hreyfihlutann og því gott að mæta í skóm sem gott er að hlaupa, skokka eða ganga í.
Þeir sem vilja styrkja verkefnið í nafni Heiðarskóla er bent á: https://sofnun.unicef.is/teams/heidarskoli-hvalfjardarsveit/donate
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |