Útskrift 10. bekkjar

Í dag voru útskrifuð úr Heiðarskóla þau Eymar Kristinn Björgvinsson, Eyrún Jóna Óladóttir, Guðmundur Ágúst Sigurðarson, Júlía Sól Svanbergsdóttir, Marteinn Bóas Maríasson, Oddur Ottesen, Páll Andrés Þorgeirsson og Sædís Ósk Pálmadóttir.

Stutt athöfn var í sal skólans fyrir útskriftarnema og nánustu aðstandendur. Eftir athöfn var boðið upp á hátíðarmat. Við óskum útskriftarnemum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með áfangann og óskum þeim farsældar í framtíðinni.