Útskrift elstu barna leikskólans

Á þriðjudaginn var formleg útskrift elstu barnanna í leikskólanum en senn fer að líða að þau hefji grunnskólagöngu sína. Það voru 14 börn sem útskrifuðust að þessu sinni og fengu þau afthend tré frá leikskólanum og ferilmöppur sínar þar sem leikskólagangan er skrásett fyrir hvern og einn. Við áttum ánægjulega stund saman með börnunum og fjölskyldum þeirra sem buðu síðan í útskriftarkaffi að athöfn lokinni. Við óskum börnunum og fjölskyldum þeirra til hamingju með áfangann.