Útskriftarferð elstu barna

Í gær fóru útskriftarbörnin okkar í útskriftarferð. Farið var á Akranes með rútu. Börnin byrjuðu á því að skoða vitann. Það þorðu allir upp en skulfu mis mikið. Svo var gengið allað leið á Langasand þar sem buslað var í sjónum og leikið sér. Eftir góðan leik var ferðinni heitið á Galito þar sem pizzaveisla beið barnanna. Eftir hádegismatinn var kíkt í heimsókn á Slökkvistöðina. Allir ánægðir með ferðina.