Vindáshlíð - skólabúðir 9. bekkjar

Þessa vikuna dvelja nemendur okkar í 9. bekk í skólabúðum í Vindáshlíð með nemendum sama árgangs úr samstarfsskólunum á Vesturlandi. Skólarnir eru Grunnskólinn á  Reykhólum, Grunnskólinn í Borgarnesi, Grunnskóli Borgarfjarðar, Auðarskóli og Heiðarskóli. Krakkarnir eru búnir að fara í mikið af alls kyns leikjum og prófa fullt af nýjum spilum. Nemendur hafa líka fengið mörg tækifæri til að æfa hugrekki, samskipti og þor. Hópurinn er væntanlegur heim í Heiðarskóla fyrir hádegið á föstudaginn.