- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Miðvikudaginn 3. júní fór miðstigið í skemmtilega ferð í Siglunes. Ferðin var í boði Önnu Guðrúnar, stuðningsfulltrúa á miðstigi, sem skipulagði heimsóknina af miklum myndarskap. Skólinn lagði til rútuferðina.
Við komuna tók á móti okkur frábær hópur starfsmanna sem fór yfir öryggisreglur og aðstoðaði alla við að klæðast björgunarvestum. Að því loknu héldu nemendur á sjó í árabátum þar sem reyndi á samvinnu, þrautseigju og góða liðsheild.
Á sjónum tóku nemendur þátt í ýmsum skemmtilegum verkefnum, meðal annars keppni þar sem boltum var kastað út á sjó og áhafnirnar kepptust við að ná sem flestum boltum. Starfsmenn Sigluness sýndu einnig „draugaskipið“ og bjuggu til öldur sem vöktu mikla lukku og hlátur meðal nemenda sem komu vel blautir í land.
Þegar í land var komið fengu þeir sem vildu að fara á bananabát og nokkrir létu sig jafnvel hafa það að stökkva út í sjóinn. Að lokum fengu allir sér nesti eða pylsur áður en haldið var heim á leið.
Þó ekki hafi gefist tími til að heimsækja ylströndina að þessu sinni var dagurinn einstaklega vel heppnaður. Veðrið lék við okkur allan daginn og við sluppum alveg við rigninguna.
Við viljum færa Önnu Guðrúnu og starfsfólki Sigluness innilegar þakkir fyrir frábæran dag, hlýjar móttökur og skemmtilega upplifun.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |