- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í vikunni voru svokallaðir vorskóladagar í Heiðarskóla. Nemendur í 10. bekk fóru í starfsnám og völdu mismunandi vinnustaði út frá eigin áhugasviði. Elsti árgangurinn í Skýjaborg æfði sig í að vera í 1. bekk og taka skólabílinn til og frá skóla. Aðrir bekkir færðust upp um einn og æfðu sig líka fyrir næsta skólaár. Það var sérlega gaman fyrir nemendur í 4. bekk að færa sig yfir á miðstigið en með auknum aldri fylgja oft aukin réttindi. Nemendur á miðstigi mega t.d. nota tyggjó í skólanum og vakti það mikla lukku hjá 4. bekkingunum okkar. Einnig voru nemendur í 7. bekk mjög ánægðir að fá að prófa að vera í unglingadeildinni. Vorskóladagarnir voru í 3 daga og voru í alla staði vel heppnaðir. Við bíðum spennt eftir næsta skólaári.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |