Blár dagur í dag í Heiðarskóla

Laugardaginn 2. apríl var alþjóðlegur dagur einhverfu. Í Heiðarskóla var haldið upp á daginn í dag. Margir mættu bláklæddir og Arnheiður Andrésdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, hélt fyrirlestur um taugaraskanir með sérstakri áherslu á einhverfu fyrir nemendur og starfsfólk. Fyrirlesturinn var bæði gagnlegur og fróðlegur, færum við Arnheiði bestu þakkir fyrir. Okkur langar líka að benda á eftirfarandi myndband: https://www.youtube.com/watch?v=Lr4_dOorquQ