Dagur læsis í Heiðarskóla

Í gær var Dagur læsis. Nemendur og starfsmenn Heiðarskóla gerðu ýmislegt í tilefni dagsins. Allir nemendur og starfsmenn tóku þátt í yndislestri. Unglingastigið tók viðtöl við nemendur og starfsmenn og gaf út fréttabréf. Þrír bókaklúbbar hófu starfsemi sína á bókasafninu fyrir yngsta og miðstig;  Kidda klaufa klúbburinn, bókaklúbbur Skúla skelfis og bókaklúbbur Binnu B Bjarna. Klúbbarnir virka þannig að nemendur lesa bækur úr bókaflokknum og þegar þeir hafa lokið við bók merkja þeir við á þar til gert blað og velja sér skemmtileg verkefni í kjölfarið. Bókaklúbbarnir höfðu mjög hvetjandi áhrif á nemendur og það var nóg að gera hjá starfsmanni bókasafnsins í morgun þegar stoltir og ánægðir nemendur mættu með bækur sem þeir höfðu lesið í gær og fengu að byrja klúbbastarfið.