Fjölbreytt skólastarf

Hjóladagur 2014
Hjóladagur 2014

Undanfarið hefur verið mikið að gera í Heiðarskóla. S.l. miðvikudag var gróðursetningardagur, nemendur settu niður kartöflur og gróðursettu tré. Á föstudaginn var velheppnaður "survivordagur" í Fannahlíð. Nemendur skólans leystu alls kyns þrautir í ratleik fyrir hádegi en eftir hádegið smíðuðu krakkarnir brú yfir lækinn og fóru í leiki. Í dag var hjóladagur. Lögreglan kom í heimsókn og var með fræðslu, hjólaskoðun og hjólabraut fyrir nemendur. Inn á myndasafnið eru komnar nýjar myndir. Unglingadeildin fór í sitt árlega skólaferðalag í morgun. Að þessu sinni var farið í Skagafjörðinn. Unglingarnir eru netsambandslausir í ferðinni en við fáum vonandi einhverjar fréttir af þeim. Þeir koma aftur heim á miðvikudaginn.