- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í dag fengum við góða fyrirlesta um jákvæð samskipti og hvernig hver og einn getur valið að vera jákvæður leiðtogi, hjálpað öðrum og látið gott af sér leiða. Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda og félagsmálafræði, kom í heimsókn og kenndi nemendum skólans góðar leiðir í jákvæðum samskiptum. Fyrirlestrarnir fyrir nemendur skólans voru í boði Ungmennafélagsins og færum við þeim bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Vanda hélt einnig gagnlegan fyrirlestur fyrir starfsmenn Leik- og grunnskóla í lok dags.