Jól í skókassa

Heiðarskóli tekur þátt í verkefninu ,,jól í skókassa,, sem felst í að safna saman hlutum í skókassa sem hlýja og gleðja börn í Úkraínu. Í dag kláruðu nemendur á unglingastigi að setja allt í kassana sem þarf að vera og pakka þeim inn. Verkefnið er hluti af Grænfánaverkefni skólans sem felur í sér að láta gott af sér leiða.