Jólatréð sótt í Álfholtsskóg

Nemendur í 10. bekk fóru á miðvikudaginn í sína árlegu jólatrésferð í Álfholtsskóg, krakkarnir tóku góðan göngutúr í skóginum í leit sinni að rétta trénu. Þegar það var fundið var hafist handa við að saga og koma á réttan stað. Jólatréð stendur nú vel skreytt í matsal skólans. Bjarni frá Skógræktarfélagi Skilmannahrepps tók vel á móti hópnum og bauð upp á heitan súkkulaðidrykk, kleinur og smákökur í lokin. Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur.