Nemendaferð 9. og 10. bekkjar til Brighton

Þessa dagana eru nemendur okkar í 9. og 10. bekk í vorferðalagi í Brighton. Nemendur hafa lagt mikið á sig við að safna fyrir ferðinni með dyggum stuðningi forráðamanna, styrkjum frá fyrirtækjum og Hvalfjarðarsveit. Færum öllum sem styrktu börnin bestu þakkir fyrir. Hópurinn lenti í London í gær, fór með rútu til Brighton þar sem kíkt var í tívolí og leikjasal. Í dag áttu nemendur okkar góðan dag í Forest school eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Virðist vera örlítið betra veður en á Íslandi.  Á morgun verður farið í Chessington garðinn og á föstudaginn í vatnaíþróttir. Hópurinn heldur heim til Íslands á laugardaginn.