Nemendur í 3. bekk í heimsókn á Slökkvistöðina

Í dag fóru nemendur okkar í 3. bekk í heimsókn á Slökkvistöðina á Akranesi og fræddust um eldvarnir, skoðuðu Slökkvistöðina og léku sér í bílunum. Þeir fengu líka bækur og bókamerki sem börnin ætla að ræða heima við foreldra sína. Á meðfylgjandi mynd má sjá hópinn á Slökkvistöðinni. Krakkarnir þakka kærlega fyrir góðar móttökur.