Öskudagur í Heiðarskóla - söngstöðvar

Söngstöðvar á öskudegi eru orðnar árviss viðburður hjá okkur í Heiðarskóla. Fjölbreyttur söngur hljómaði um skólann meðan börnin sungu alls kyns á söngstöðvum.  Að sjálfsögðu fengu börnin nammi og vínber fyrir sönginn og í ár erum sérlega stolt af því að börnin útbjuggu sjálf sín eigin kramarhús úr afgangspappír fyrir herlegheitin. Þar með erum við að draga úr plastnotkun sem er eitt af markmiðum skólans í umhverfismennt og grænfánavinnu.