Rithöfundaheimsókn

Bjarni Fritzson, rithöfundur, kíkti í heimsókn í Skýjaborg og Heiðarskóla í gær og las fyrir börnin. Heimsóknin var í tilefni af Degi  íslenskrar tungu sem haldin er 16. nóvember ár hvert. Bjarni vakti mikla lukku hjá krökkunum enda sagði hann mjög skemmtilegar sögur af Orra óstöðvandi og Möggu Messí.