Skólasamstarfið

Á covid tímum eru forréttindi að fá að starfa í skóla þar sem við náum að vera í samskiptum við fólk í raunheimum. Erum einstaklega ánægð með skólasamstarfið í dag þar sem nemendur í 5. bekk tóku að sér að aðstoða Snákahóp, elsta árgang Skýjaborgar og tilvonandi nemendur í 1. bekk skólaárið 2021 - 2022,  í heimilisfræði. Börnin gerðu pizzabrauð, spjölluðu saman, vöskuðu upp og gengu frá.