Vinna við bekkjarsáttmála

Heiðarskóli starfar í anda uppbyggingarstefnunnar, Uppeldi til ábyrgðar. Liður í þeirri vinnu er að námshóparnir gera sinn eigin bekkjarsáttmála á haustin. Þá ræða nemendur hvernig þeir vilja koma fram hver við annan, hvernig þeir  vilja nýta tímann í skólanum til náms og hvaða gildi skipta þá mestu máli. Undanfarnar vikur hafa nemendur verið að útbúa sína sáttmála. Inn á myndaalbúm eru komnar myndir af sáttmálum frá öllum stigum.