- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í dag var önnur heimsókn vorskólabarna í Heiðarskóla. Dagurinn gekk mjög vel. Börnin héldu áfram að vinna með skólaverkefni með Berglindi, þau hittu Björk í heimilisfræði og gerðu með henni gómsætan jarðarberjadrykk. Þau fóru í leikfimi til Helgu og skemmtu sér konunglega. Einnig fengu börnin frjálsan tíma, þar sem þau léku sér, skoðuðu bækur og lituðu. Næsta vorskólaheimsókn er miðvikudaginn 14. maí. Inn á myndasafnið eru komnar myndir af vorskólabörnunum við leik og störf í dag.