Að koma og fara

Við leggjum áherslu á að vel sé tekið á móti barninu og láta það finna að það sé velkomið í leikskólann og í lok dags sé barnið kvatt og því þakkað fyrir daginn. Mikilvægt er að foreldrar fylgi börnum sínum til starfsfólks þegar komið er í leikskólann. Það varðar öryggi barnanna að þau komist í öruggar hendur áður en þau eru kvödd. Jafnmikilvægt er að kveðja í lok dags. Það er gott að gefa barninu tíma til þess að ljúka við vinnu sína og kveðja starfsfólkið þegar það fer heim. 

Börn yngri en 12 ára er að jafnaði ekki heimilt að sækja börnin. Við biðjum foreldra að virða það. 

Börn fara ekki heim í lok dags með öðrum börnum og foreldrum þeirra nema leikskólanum hafi verið tilkynnt um það af viðkomandi foreldri. 

Við viljum minna foreldra á að loka alltaf hliðinu og á öllum tímum. Börn eiga það til að vilja opna og loka hliðinu þegar komið er með þau og þau eru sótt. Vinsamlegast brýnið fyrir börnunum að það séu bara fullorðnir sem eiga að opna og loka hliðinu. Ef börnin þjálfast í að opna hliðið getur orðið úr því hættulegur leikur á skólatíma. 

Vinsamlegast stöðvið bílvélina fyrir utan leikskólann.