Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólanum Skýjaborg, Hvalfjarðarsveit fyrir næsta skólaár.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu leikskólasviðs við grunnskólasvið skólans og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til námsí leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Starfsfólk í leikskólakennaranámi geta fengið samning um fá að halda dagvinnulaunum í staðarlotum og í vettvangsnámi í allt að 7 vikur á ári. Deildarstjórar og leikskólakennarar fá aukin undirbúningstímamiðað við kjarasamning (leikskólakennarar 5 klst. og deildarstjórar 7 klst.).  

Skýjaborg er í tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnarmeð 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku

Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Leikskólakennaranemar geta gert samning og haldið dagvinnulaunum í staðarlotum og í vettvangsnámi í allt að 7 vikur á ári. 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://skoli.hvalfjardarsveit.is.   

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Að vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Stjórnun og skipulag deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á uppeldi- og menntunarstarfi sem fram fer á deildinni 

Hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Reynsla af uppeldis- og menntunarstörfum æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og samstarfi
  • Góð íslenskukunnátta 

Starfshlutfall er 100%. Um framtíðarstarf er að ræða. Ef ekki fæst leikskólakennari verður litið til menntunar og reynslu. Laun samkvæmt SNS og viðkomandi stéttarfélags. 

 

Umsóknarfrestur um starfið er til 27. maí 2019. 

 Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um. Starfið hentar báðum kynjum. Ráðið er frá ágúst 2019.  

Umsókn með starfsferilskrá sendist á eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri (Eyrún) og aðstoðarleikskólastjóri (Guðmunda) í síma 433 8530 og á netfangi hér að ofan.