Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar auglýsir lausar stöður fyrir næsta skólaár

Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar varð til við sameiningu leikskólans Skýjaborgar og grunnskólans Heiðarskóla árið 2011. Skólinn er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í íbúðarhverfinu Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu leikskólasviðs við grunnskólasvið skólans og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Starfsfólk í leikskólakennaranámi geta fengið samning um fá að halda dagvinnulaunum í staðarlotum og í vettvangsnámi í allt að 7 vikur á ári. Deildarstjórar og leikskólakennarar fá aukin undirbúningstíma (leikskólakennarar 5 og deildarstjórar 7) og verið er að hækka barngildin hjá 4 og 5 ára börnum frá og með hausti 2018.

Skýjaborg er að fara af stað með tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar næstu tvö árin með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://skoli.hvalfjardarsveit.is.

 

Deildarstjóri óskast til starfa í Skýjaborg

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Stjórnun og skipulag deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á uppeldi- og menntunarstarfi sem fram fer á deildinni

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Reynsla af uppeldis- og menntunarstörfum æskileg
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og samstarfi
  • Góð íslenskukunnátta

Starfshlutfall er 100%. Um framtíðarstarf er að ræða. Ef ekki fæst leikskólakennari verður litið til menntunar og reynslu. Laun samkvæmt SNS og viðkomandi stéttarfélags.

 

Leikskólakennarar óskast til starfa í Skýjaborg

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
  • Að skipuleggja faglegt starf undir stjórn deildarstjóra

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Starfshlutfall er 100%. Um framtíðarstarf er að ræða. Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu. Laun samkvæmt SNS og viðkomandi stéttarfélags.

 

Þroska- og/eða iðjuþjálfi óskast til starfa við leik- og grunnskólasvið

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vera ráðgefandi um þroska og nám barna
  • Að annast þjálfun barna
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa
  • Að standa vörð um nám og velferð barna
  • Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár í samstarfi við sérkennara

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem þroska- og/eða iðjuþjálfi
  • Reynsla af vinnu með börnum með fötlun æskileg
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Áhugi á samvinnu og teymiskennslu

Starfshlutfall er 100%; 80% við leikskólasvið og 20% við grunnskólasvið. Um framtíðarstarf er að ræða. Ef ekki fæst þroska- og/eða iðjuþjálfi verður litið til menntunar og reynslu. Laun samkvæmt SNS og viðkomandi stéttarfélags.

 

Umsóknarfrestur um störfin er til 13. júní 2018. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um. Störfin henta báðum kynjum. Ráðið er frá ágúst 2018. Umsókn með starfsferilskrá sendist á eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is. Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri (Eyrún) og aðstoðarleikskólastjóri (Guðmunda) í síma 433 8530 og á netfangi hér að ofan.