Skýjaborg auglýsir eftir leikskólakennara

Leikskólinn Skýjaborg auglýsir eftir leikskólakennara til starfa í 100% stöðu frá 2. janúar 2026.

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæka íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.

Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla.
  • Vinna í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu*
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Góð samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

*Ef ekki fást leikskólakennarar verður horft til menntunar og reynslu. Við hvetjum því öll áhugasöm til að sækja um.

Hlunnindi í starfi

  • 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.
  • 6 skipulagsdagar á ári.
  • Veittur er styrkur til náms í leikskólakennaranámi og leikskólaliðanámi.

Umsóknarfrestur til og með 2. desember 2025.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir í síma 4338530 eða með því að senda fyrirspurn á eyrun@hvalfjardarsveit.is.

Launakjör er samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá og leyfisbréfs (ef við á) skilað í gegnum Alfreð eða í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.