Skýjaborg auglýsir eftir leikskólasérkennara / þroskaþjálfa

Leitað er að leikskólasérkennara / þroskaþjálfa í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæka íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.

Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
  • Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu, fagaðila og aðra ráðgjafa og situr fundi og viðtöl með þeim.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu, uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
  • Starfar í sérkennsluteymi leikskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf leikskólakennara / starfsleyfi sem þroskaþjálfi
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Reynsla af skipulagningu sérkennslu og þjálfunar
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

*Ef ekki fæst leikskólakennari / þroskaþjálfi verður horft til menntunar og reynslu.

Hlunnindi í starfi

  • 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttinguna.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir í síma 4338530 / 8925510 eða með því að senda fyrirspurn á eyrun@hvalfjardarsveit.is.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá og leyfisbréfi skilað í gegnum Alfreð eða í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.