Þroska og/eða iðjuþjálfi óskast til starfa

Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar auglýsir lausa stöðu þroska- og/eða iðjuþjálfa

 

Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar varð til við sameiningu leikskólans Skýjaborgar og grunnskólans Heiðarskóla árið 2011. Skólinn er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í íbúðarhverfinu Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi og er skólinn leiðandi í spjaldtölvunotkun í skólastarfi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu leikskólasviðs við grunnskólasvið skólans og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi.

Í Heiðarskóla gefst sömuleiðis tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni í teymiskennslu með áherslu á spjaldtölvur, umhverfismennt og útinám. Í Heiðarskóla er lagt upp með ábyrgð einstaklingsins á eigin hegðun og námi út frá aðferðum Uppbyggingarstefnunnar.

 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://skoli.hvalfjardarsveit.is.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vera ráðgefandi um þroska og nám barna
  • Að annast þjálfun barna
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa
  • Að standa vörð um nám og velferð barna
  • Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár í samstarfi við sérkennara

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem þroska- og/eða iðjuþjálfi
  • Reynsla af vinnu með börnum með fötlun æskileg
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Áhugi á samvinnu og teymiskennslu

 

Starfshlutfall er 100%; 80% við leikskólasvið og 20% við grunnskólasvið.

Um framtíðarstarf er að ræða.

Ef ekki fæst þroska- og/eða iðjuþjálfi verður litið til menntunar og reynslu.

 

Umsóknarfrestur um störfin er til 3. Janúar 2018. Ath. Framlengdur frestur til 10. janúar 2018. 

 

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um.

Störfin henta báðum kynjum.

Ráðið er frá janúar svo umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

 

Umsókn með starfsferilskrá sendist á eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is (Skýjaborg) eða sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is (Heiðarskóli).

 

Nánari upplýsingar veita skólastjórar;

Eyrún Jóna Reynisdóttir Skýjaborg, í síma 433 8530 / 892 5510

Sigríður Lára Guðmundsdóttir Heiðarskóla, í síma 433 8525 / 899 5156.