Fréttir

Stóra upplestrarhátíðin í Auðarskóla

Í gær, fimmtudaginn 14.apríl, var lokahátíð Stóru upplestrarkeppni 7.bekkjar haldin í Leifsbúð í Búðardal.Þrír nemendur, Unndís Ida, Guðrún og Helga María, fóru frá Heiðarskóla ásamt Einari kennara en þær Unndís og Guðrún tóku þátt í keppninni ásamt 7 öðrum nemendum úr samstarfsskólunum.
Lesa meira

Skemmtilegt útinám

Við erum svo sannarlega búin að njóta góða veðursins þessa vikuna.Útinámið er búið að vera einstaklega skemmtilegt og eru börnin búin að fara í nokkra göngutúra og vettvangsferðir í vikunni, ýmist í litlum eða stórum hópum.
Lesa meira

Góða veðrið í gær

Veðrið lék við okkur í gær eins og sjá má af myndum sem komnar eru í myndaalbúm Heiðarskóla.Unglingar voru í útiíþróttum, yngstu börnin unnu talningarverkefni og miðstigskrakkar lærðu um kyrrmyndir í góða veðrinu.
Lesa meira

Skólasamstarfið heldur áfram

Veðrið lék við tilvonandi 1.bekkinga í Heiðarskóla í dag.Börnin fóru í sund, hittu vini sína í 1.bekk, fóru í frímínútur og á bókasafnið, borðuðu tortillur í hádegismat og í dag tóku þau í fyrsta skipti þátt í hádegisfrímínútum.
Lesa meira

Stóra upplestrarhátíðin í Heiðarskóla

Undanfarnar vikur hafa nemendur í 7.bekk verið að æfa sig í ýmis konar upplestri.Í gærkvöldi, þriðjudagskvöldið 5.apríl, fór svo sjálf upplestrarhátíðin fram hér í Heiðarskóla.
Lesa meira

Góður gestur í dag

Guðbjörg Rós Guðnadóttir, fyrrverandi Heiðarskólanemandi, kom í heimsókn til okkar í dag og sagði frá því hvernig hún fór að því að verða atvinnuflugmaður.Hún starfar nú hjá  flugfélaginu Air Atlanta.
Lesa meira

Blár dagur í dag í Heiðarskóla

Laugardaginn 2.apríl var alþjóðlegur dagur einhverfu.Í Heiðarskóla var haldið upp á daginn í dag.Margir mættu bláklæddir og Arnheiður Andrésdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, hélt fyrirlestur um taugaraskanir með sérstakri áherslu á einhverfu fyrir nemendur og starfsfólk.
Lesa meira

Menningarmót

Líf og fjör var á menningarmóti í Heiðarskóla í dag þegar nemendur kynntu afrakstur þemavinnunnar undanfarna daga.Eftirfarandi lönd voru kynnt: Svíþjóð, Þýskaland, Lettland, Uruguay, Tyrkland, Úkraína, Pólland, Bosnía - Herzegóvína, Bahamas og Litháen.
Lesa meira

Menningarmót í Heiðarskóla

Undanfarna daga hafa nemendur skólans verið í þemavinnu.Þeim var skipt í 10 aldursblandaða hópa og hver og einn hópur kynnti sér eitt ákveðið land.Á morgun er opinn dagur í skólanum og boðið upp á menningarmót þar sem gestum er boðið að kynna sér afrakstur þemavinnunnar.
Lesa meira

Fyrrverandi nemendum boðið í heimsókn

Í tilefni af 50 ára afmælisári skólans langar okkur að bjóða fyrrverandi nemendum skólans í heimsókn og biðja þá um að segja okkur frá því hvað þeir eru að gera í dag.
Lesa meira