Fréttir

Grýla og jólasveinarnir

Í dag kom leikkonan Þórdís Arnljótsdóttir með leiksýninguna sína um Grýlu og jólasveinana til okkar.Leikritið segir frá stúlku sem fer að heiman og hittir gamla konu sem segir henni frá Grýlu og drengjunum hennar, jólasveinunum, og ævintýrum sem þeir lenda í.
Lesa meira

Leiksýning í Heiðarskóla

Í dag fengum við góða gesti í heimsókn.Stoppleikhópurinn sýndi leikritið „Upp,upp“ fyrir nemendur okkar í 4.– 10.bekk.Í verkinu segir frá uppvaxtarárum Hallgríms Péturssonar.
Lesa meira

Undirbúningur fyrir Fullveldishátíð

Það var mikil gleði hjá nemendum í 1.- 5.bekk á æfingu fyrir Fullveldishátíð Heiðarskóla en krakkarnir æfðu í fyrsta skipti á sviði í dag.Elsti árganguri leikskólans tekur líka þátt í sýningunni.
Lesa meira

Heimsókn frá stofnun Árna Magnússonar

Fimmtudaginn 13.nóvember s.l.fengu 6.og 7.bekkur fróðlega heimsókn frá Stofnun Árna Magnússonar.Í skólastofuna mættu þau Svanhildur og Jón og leiddu krakkana inn í heim handverksmenningar miðalda með fræðslu um bókagerðina.
Lesa meira

Allir lesa

Undanfarnar vikur hefur Heiðarskóli tekið þátt í átakinu „Allir lesa“.Börnin byrja skóladaginn á yndislestrarstund.Þá les hver og einn í bók að eigin val sér til yndis og ánægjuauka.
Lesa meira

Nordplus verkefni

Opnuð hefur verið heimasíða þar sem verkefnum Nordplussamstarfsins sem leikskólinn tekur þátt í eru gerð skil.Vefsíðan er aðgengileg á slóðinni http://winnieandwood.
Lesa meira

Opið hús í Heiðarskóla á morgun

Undanfarna daga hafa börnin verið að vinna verkefni í tengslum við átthagana í umhverfisþema skólans.Við minnum á að á morgun er opið hús í Heiðarskóla og gestum er velkomið að kíkja í heimsókn og dvelja með okkur part úr degi eða allan daginn.
Lesa meira

Furðufatadagur á fimmtudaginn

Á fimmtudaginn er furðufatadagur í leikskólanum.Allir sem vilja mega koma í furðufötum, búning, náttfötum eða venjulegum fötum. Þennan dag er einnig sameiginlegt afmæli fyrir afmælisbörn nóvembermánaðar.
Lesa meira

Hvolpar í heimsókn

Í gær fengu litlu hvolparnir hennar Báru að kíkja í heimsókn í leikskólann í smá stund.Börnin hafa fylgst spennt með uppeldi hvolpanna frá því þeir fæddust og farið í margar heimsóknir til þeirra.
Lesa meira

Bangsadagurinn í leikskólanum

Á mánudaginn var alþjóða Bangsadagurinn og héldum við hann að sjálfsögðu hátiðlegan í leikskólanum.Börnin komu með bangsana sína með sér í skólann og leyfðu þeim að taka þátt í skólastarfinu.
Lesa meira