13.02.2015
Í dag var mikið fjör í Heiðarskóla þegar um 90 nemendur og starfsmenn tóku þátt í alheimsviðburðinum "Milljarður rís" en þá kemur fólk saman og dansar gegn kynbundnu ofbeldi.
Lesa meira
06.02.2015
Samkvæmt skóladagatali Heiðarskóla verða starfsdagar mánudaginn 9.febrúar og þriðjudaginn 10.febrúar.
Skólahald fellur því niður þessa daga. Nemendur mæta aftur í skólann miðvikudaginn 11.
Lesa meira
06.02.2015
Það var líf og fjör á Þorrablóti Heiðarskóla sem haldið var í gær.Hvert stig kom með eitt skemmtiatriði og síðan voru sungin nokkur lög.Að lokum var snæddur ljúffengur þorramatur.
Lesa meira
04.02.2015
Heiðarskóli tekur að vanda þátt í lífshlaupinu en fyrsti dagur í átakinu er einmitt í dag. Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni daglegu hreyfingu í frítíma, heimilisstörfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta.
Lesa meira
03.02.2015
Þessa vikuna eru nemendur okkar í 1.– 3.bekk í uppbyggingarþema sem gjarnan er nefnt uppeldi til ábyrgðar.Áherslan í þemanu er á þarfakynningu og hlutverk barnanna og starfsmanna í skólanum.
Lesa meira
23.01.2015
Stelpurnar í 6.bekk komu bekkjarbræðrum sínum hressilega á óvart í fyrsta tíma í morgun með kökuhlaðborði og skreytingum.Tilefnið var að sjálfsögðu bóndadagurinn.
Lesa meira
21.01.2015
Þessa vikuna dvelja nemendur okkar í skólabúðum á Reykjum í Hrútafirði ásamt öðrum nemendum af Vesturlandi.Í gær fóru krakkarnir í sund, íþróttir, undraheim auranna, náttúrufræði þar sem fjaran var skoðuð og einhverjir fóru á byggðasafnið.
Lesa meira
16.01.2015
Nemendur og starfsmenn Heiðarskóla áttu saman dásamlega sögustund við varðeld í morgunsárið.Oddur Örn í 6.bekk las frumsamda sögu um Skugga, Jóhanna í 8.bekk las söguna um Einfætta dátann, sagan var samin í átthagaþemanu sem haldið var í haust og er eftir þær Jóhönnu, Jórunni og Brimrúnu í 8.
Lesa meira
12.01.2015
Sú hefð hefur skapast í Heiðarskóla að vigta af og til matarleifar í hádegismatnum.Þá vigtum við það sem hver og einn bekkur leifir.Í desember var vigtunarvika og krakkarnir stóðu sig aldeilis vel.
Lesa meira
09.01.2015
Nemendur í 1.bekk kláruðu endurskinskarlana sína í textílmennt í dag.Það voru stoltir krakkar sem hengdu endurskinskarlana á skólatöskurnar sínar.Annars fer skólastarfið vel af stað á nýju ári og ekki annað að sjá en börnin séu ánægð og glöð, njóti þess að hitta skólafélagana og tilbúin að gera sitt besta í náminu.
Lesa meira