Fréttir af Heiðarskóla

Fyrrverandi nemendum boðið í heimsókn

Í tilefni af 50 ára afmælisári skólans langar okkur að bjóða fyrrverandi nemendum skólans í heimsókn og biðja þá um að segja okkur frá því hvað þeir eru að gera í dag.
Lesa meira

Páskaleyfi

Nemendur  skólans eru nú komnir í pákaleyfi.Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 29.mars.Starfsfólk skólans óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska.
Lesa meira

Árshátíð Heiðarskóla

Mjög fjölmennt var á Árshátíð Heiðarskóla í gær.Krakkarnir á miðstigi fluttu leikritið „Ævintýraruglingur“ við mikinn fögnuð áhorfenda enda skemmtilegt leikrit þar sem ruglað var með ævintýraheiminn út í eitt.
Lesa meira

Skólahreysti- og skautaferð

Á miðvikudaginn fóru nemendur okkar í 5.- 10.bekk í skemmtiferð til Reykjavíkur.Hópurinn byrjaði á skautum í Egilshöll, fór út að borða og eftir hádegið horfðu krakkarnir á  lið skólans keppa í Skólahreysti.
Lesa meira

Danssýning

Nemendur skólans hafa undanfarnar vikur verið í danskennslu hjá Írisi Ósk Einarsdóttur, danskennara.Það er mál manna að krakkarnir hafi almennt staðið sig mjög vel.Mánudaginn 14.
Lesa meira

Árshátíð Heiðarskóla

  Árshátíð Heiðarskóla 2016 Miðvikudaginn 16.mars í Heiðarskóla Sýningin hefst stundvíslega: klukkan 17:15 Formaður nemendafélagsins flytur ávarp.Vinningsatriðið úr Hæfileikakeppni 2016.
Lesa meira

Púðar í 5. - 10. bekk

Við námið sitja nemendur á vönduðum, sérhönnuðum skólastólum en sitt sýnist hverjum.Margir hafa kvartað yfir óþægindum við að sitja lengi á þessum stólum.Í dag var vonandi fundin lausn á þessu máli þegar nemendur fengu púða til að hafa í stólunum.
Lesa meira

Útivera á miðstigi

Börnin á miðstigi hafa í vetur fengið að njóta þess að hefja skóladaginn á útivist og hreyfingu.Ýmsar rannsóknir benda til þess að betri árangur náist í námi með aukinni hreyfingu.
Lesa meira

Líf og fjör í Heiðarskóla á öskudaginn

Það var líf og fjör í Heiðarskóla í gær þegar alls kyns kynjaverur mættu í skólann og gerðu sér glaðan dag.Krakkarnir fóru á söngstöðvar og fengu nammi eða mandarínur.
Lesa meira

Þorrablót Heiðarskóla 2016

Það var líf og fjör á Þorrablóti Heiðarskóla sem haldið var í dag.Hvert stig sá um skemmtiatriði og sungin voru nokkur lög.Að lokum var snæddur ljúffengur þorramatur.
Lesa meira